Til baka í þjónustu
Invisalign
Invisalign er tannréttingaraðferð þar sem notast er við glærar, BPA-fríar skinnur sem eru sérsniðnar að hverjum og einum. Með Invisalign er hægt að leiðrétta skakkar tennur og sumar gerðir bitskekkju á áhrifaríkan og þæginlegan hátt.
Endilega bókaðu þig í fría ráðgjöf sem felst í því að tekið er munnskann (þrívddarskann) af gómunum þínum og nokkrar ljósmyndir til að meta hvort Invisalign sé rétta lausnin fyrir þig.
Skinnurnar eru nær ósýnilegar og auðvelt að fjarlægja úr munni. Skipta þarf um skinnur vikulega og hafa þær í munni að minnsta kosti 22 klukkustundir á sólarhring svo færsla verði á tönnum.



