Til baka í þjónustu

Barnatannlækningar

Mikilvægt er að fyrstu heimsóknir barna til tannlæknis séu jákvæðar og skapi traust. Mælt er með að börn komi í fyrsta sinn til tannlæknis um þriggja ára aldur – en fyrr ef grunur er um eitthvað óeðlilegt.

Ráð fyrir foreldra

  • Talaðu jákvætt um tannlækninn áður en þið komið – forðastu orð eins og "verk" eða "hrædd/ur".
  • Láttu barnið fylgjast með ef þú ferð sjálf/ur eða systkini í skoðun – það getur vakið forvitni og dregið úr óvissu.
  • Lesið saman bók um tannlækna (t.d.Emma fer til tannlæknis, Freyja og Fróði hjá tannlækni).
  • Komdu með uppáhaldsleikfang eða bangsa með í heimsóknina – það getur veitt öryggi.
  • Komdu tímanlega og í rólegu andrúmslofti – stress smitast oft frá foreldri til barns.

Markmiðið er að byggja upp traust og gera heimsóknina að jákvæðri upplifun sem styrkir góðar venjur til framtíðar.

Tannlæknaþjónusta er ókeypis fyrir börn að 18 ára aldri fyrir utan 3.500 kr. komugjald sem greiða þarf einu sinni á ári.

Barnatannlækningar - Image 1
Barnatannlækningar - Image 2
Barnatannlækningar - Image 3

Verðlagning

3.500 kr. komugjald á ári